Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði á Eldhúsdagsumræðum í kvöld að Alþingi Íslendinga væri í ruglinu og að það þyrfti að fara í meðferð.
„Eins og sumir gætu orðað það, við þurfum að fara í meðferð. Fyrsta skrefið er að segja það beint út; Alþingi Íslands er í ruglinu,“ sagði Sigríður Ingibjörg þegar hún vitnaði í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og sagði nauðsynlegt að læra af henni.
„Alþingismenn og þingflokkar þurfa að endurskoða starfshætti sína. Við gætum sagt að við þyrftum að fara í meðferð. Á þjóðþingum nágrannalandanna eru oft átök og stóryrði enda deilur hluti af lýðræðinu, en ég held að í flestum nágrannaríkjum okkar þætti stappa nærri sturlun sá pólitíski hráskinnaleikur sem hér er leikinn í alvarlegum málum.
Alþingi getur lært mikið af þjóðþingum nágrannalandanna eins og það hefur raunar gert í sumum efnum upp á síðkastið. Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis og þingmannanefnd sem vinnur úr henni eru af erlendri fyrirmynd og sannarlega til fyrirmyndar.
Hér þarf þó að ganga mun lengra og stokka starfsemi Alþingi upp. Þjóðþing Norðurlandanna þykja almennt vel skipulögð og valdamikil í samskiptum við framkvæmdavaldið. Af þeim eigum við að læra,“ sagði hún.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók undir með henni að traust á Alþingi væri í lágmarki.
„Traust á Alþingi, á þingstörfunum, hefur verið í lágmarki undanfarin misseri. Það er grafalvarlegt mál, því Alþingi er bæði elsta og æðsta valdastofnun landsins. Ég held að allir þingmenn hafi spurt sig: Hvernig má endurheimta traust Alþingis? Hvernig endurheimtum við traust á störfum þingsins?“
Steingrímur: Verkefnið er að takast
„Verkefnið er á góðri leið með að takast,“sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í umræðunum. Hann fór í gegnum þá erfiðleika sem ríkisstjórnin hefur þurft að takast á við og sagði stöðu efnahagsmála betri en spáð hafði verið. Þannig hefði landsframleiðsla orðið 1500 milljarðar á síðasta ári en ekki 1400, samdráttur varð 6,5 prósent en ekki 10 prósent, fjárlagahalli yrði 9 prósent en ekki 12,6 prósent og atvinnuleysi varð 8-9 prósent en ekki 10 prósent. Þá vildi hann ekki að þingið færi í frí fyrr en að afloknum ákveðnum málum.
„Það kemur ekki til greina að Alþingi ljúki hér störfum og fari í frí fyrr en vandaður og sómasamlegur frágangur ámálefnum heimilanna hefur fengið hér afgreiðslu. Það kemur heldur ekki til greina að Alþingi fari í frí fyrr en að tryggt verði að að vatnið verði ekki einkavætt,“ sagði Steingrímur.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var ekki sammála Steingrími og taldi ríkisstjórninni hafa mistekist.
„Það ríkir umsátur um heimilin og fyrirtækin í landinu og þetta er því miður er í samræmi við þá stefnu sem mörkuð hefur verið með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Og það virðist sem stjórnvöld einfaldlega treysti sér ekki til að hverfa af þeirri braut, þrþatt fyrir að það blasi við öllum hver afraksturinn er.“
