eyjan.is

Mánudagur 14.06.2010 - 07:32 - Ummæli ()

Meirihluti vill draga aðildarumsókn til baka

Samkvæmt nýrri könnun Markaðs- og miðlarannsókna ehf.,MMR, fyrir vefsíðuna Andríki.is, eru 57,6% þjóðarinnar fylgjandi því að íslensk stjórnvöld dragi umsókn sína um aðild að Evrópusambandinu til baka.  Þar af segjast 45,9% því mjög fylgjandi og 11,7% frekar fylgjandi. 24,3% eru mjög eða frekar andvíg því að umsóknin verði dregin til baka. Þar af eru 15,2% mjög andvíg og 9,1% frekar andvíg.

Séu einstakir hópar skoðaðir má sjá að námsmenn eru eini starfshópurinn þar sem minna en helmingur vill að umsókn verði dregin til baka. 28,7% námsmanna eru því mjög eða frekar andvíg.

Hinn 8. til 10. júní lögðu Markaðs- og miðlarannsóknir ehf. tvær spurningar um þetta mál fyrir 846 einstaklinga úr hópi sem valinn var með tilviljunarúrtaki úr þjóðskrá. Þar af tók 761 afstöðu til fyrri spurningarinnar og 730 til þeirrar síðari. Morgunblaðið í dag greinir frá könnuninni. Spurt var: Hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ertu því að íslensk stjórnvöld dragi umsókn um aðild að Evrópusambandinu til baka? Seinni spurningin spurði um hug manna til þess að fjármunum sé varið í umsóknina og var hún svo hljóðandi: Í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis, frá því í maí síðastliðnum, kemur fram að gert er ráð fyrir að beinn kostnaður vegna aðildarumsóknar að Evrópusambandinu geti numið samtals 990 m.kr. á tímabilinu 2009-2012. Hversu vel eða illa telur þú að þeim fjármunum sé varið?

Alls telja tveir þriðju þjóðarinnar að þeim fjármunum sem falla til sem beinn kostnaður við aðildarumsókn að ESB sé mjög eða frekar illa varið. Alls töldu 48,6% þeim mjög illa varið og 18,3% frekar illa, eða alls 66,9% svarenda. Samanlagt sögðust 19,9% telja fjármunum vel varið, þar af 7,6% mjög vel en 13,1% taldi fjármunum til umsóknar hvorki vel né illa varið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is