Viðskipti Miðvikudagur - 16.6 2010 - 14:59 - Ummæli ()

Hafnað sem landsfundarfulltrúa eftir gagnrýni á forystu flokksins

Nokkur ólga er í Sjálfstæðisflokknum fyrir landsfundinn sem halda á í lok mánaðarins. Eyjan hefur heimildir fyrir því að ýmsir fastagestir á landsfundi hafi fengið afsvar frá forystunni um þátttöku á fundinum í ár. Telja þeir engu líkara en að handvelja eigi á landfundinn í ríkari mæli en áður, þannig að „óþægileg“ sjónarmið verði ekki ofan á.

Almennt vilja viðmælendur þó ekki koma fram undir nafni, a.m.k. ekki fyrr en endanlegt val á landsfund liggur fyrir. Einn gaf þó kost á viðtali, Sveinn Andri Sveinsson, fyrrverandi borgarfulltrú Sjálfstæðisflokksins.

Sveinn Andri hefur verið Sjálfstæðisflokknum í áratugi og gengt þar ýmsum trúnaðarstörfum. Hann hefur setið marga landsfundi og hefur oftast fengið boð á landsfund í gegnum hverfafélag sitt í Vestur- og Miðbæ. Nú brá hinsvegar svo við að hverfafélag hans synjaði beiðni um þátttöku á landsfund.

Sveinn Andri segist meðvitaður um að hafa verið flokksforystunni erfiður undanfarna mánuði, sérstaklega eftir að skýrsla rannsóknarnefndarinnar kom út, en þá vildi hann að fleiri öxluðu ábyrgð. Þannig sagði hann við Eyjuna tveimur dögum eftir að skýrslan kom út að Bjarni Benediktsson ætti að víkja sem formaður flokksins.

Auk þess hefur hann verið ötull talsmaður þess að Ísland gangi í Evrópusambandið, en að hans mati eru slíkar skoðanir ekki vinsælar hjá flokksforystunni. Hann segist fordæma skoðanakúgun og að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að þola mismunandi sjónarmið.

Vilja að menn klappi á réttum augnablikum

„Þetta er greinileg tilhneiging til að halda utan við landsfund þeim sem þora að tjá skoðun sína,“ segir Sveinn Andri við Eyjuna. „Það er greinilegt að aðeins eiga að veljast á landsfund þeir sem standa upp og klappa á réttum augnablikum. Síðan er bannað að vera hlynntur ESB,“ segir hann.

Sveinn Andri ætlar ekki að sætta sig við höfnun frá sjálfstæðisfélagi sínu í vestur- og miðbæ, heldur hefur hann leitað til Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík og vonast til að komast þannig á fundinn.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar