Nýlega kom út bókin Rússneskt hekl á íslensku og af þessu tilefni á að slá upp útgáfuhófi í Eymudsson í dag.
Það eru aðstandendur bókarinnar, Knitting Iceland og Patrick Hassel-Zein, sem bjóða til veislunnar.
Ragnheiður Eiríksdóttir frá Knitting in Iceland segir að samkvæmt sinni bestu vitund sé þetta í fyrsta sinn sem karlmaður gefur út hannyrðauppskriftir á Íslandi.
„…eða ekki síðan 1760-1770 þegar Skúli Magnússon fógeti gaf út nokkrar lýsingar á því hvernig prjóna skyldi ýmis plögg.“
Í bókinni eru nákvæmar kennsluleiðbeiningar um rússneskt hekl og rúmlega 20 uppskriftir af flíkum fyrir karla, konur og börn.
„Innblástur Patricks kemur að miklu leyti úr íslensku prjónahefðinni en líka úr vísindaskáldsögum, hann er nefnilega Trekkari auk þess að vinna sem forritunarsérfræðingur já og svo talar hann kínversku og er skáti og musterisriddari og…. æ þið verðið bara að hitta hann í eigin persónu,“ segir Ragnheiður og bætir við að Patrick hafi búið á Íslandi síðustu 10 árin og tali ljómandi góða íslensku:
„Hann er skemmtilegur viðmælandi og alveg einstakur persónuleiki.“
Útgáfuhófið hefst í Eymundsson við Skólavörðustíg í dag og stendur milli kl. 17-18.30

