Aðgerðir lögreglu hafa takmörkuð áhrif á fíkniefnamarkaðinn

Barátta lögreglu breytir litlu í fíkniefnaheimum
Vopn þau er lögregluyfirvöld beita í baráttunni gegn fíkniefnum hér á landi hafa mjög takmörkuð áhrif og markaðurinn er jafnan fljótur að jafna sig eftir stærri rassíur og haldlagningar. Eru það fyrst og fremst gjaldeyrishöftin og gengislækkun sem hefur orðið til þess að verð á fíkniefnum hefur hækkað mjög að undanförnu.
Er þetta niðurstaða tveggja háskólanema, Eiríkur Ragnarsson og Jón Sigurðsson, en í lokaritgerð þeirra við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík reyndu þeir að greina hinn íslenska fíkniefnamarkað og skoða ytri áhrif á þróun hans.
Meginniðurstaðan er að aðgerðir lögreglu og stórar haldlagningar hafa mjög takmörk áhrif. Oftast er um skammtímaáhrif að ræða þar sem markaðurinn er frekar fljótur að jafna sig. Við athugun á haldlagningum lögreglu þá greindust í nokkrum tilfellum sjáanlegir toppar við handtöku sakbornings og eða haldlagninguna sjálfa.
Aftur á móti þykir þeim ljóst að veiking gengis íslensku krónunnar hefur haft mikil áhrif á verð fíkniefna að undanförnu. Sem dæmi um möguleg áhrif gjaldeyrishafta á verðlag fíkniefna nefna þeir eftirfarandi:
1) Takmörkun á úttekt erlends gjaldeyris hefur þau áhrif að innflutningsaðilar eiga í erfiðleikum með að nálgast gjaldeyri með tilheyrandi kostnaði. Kostaðurinn yfirfærist svo á endanum út í verð fíkniefna svipað og kostnaður vegna löggæslu og refsinga.
2) Aukning innlendrar framleiðslu á marijúana gefur til kynna að gjaldeyrishöftin hafi áhrif. Framleitt er meira innanlands af marijúana þrátt fyrir að innflutt hass sé ódýrara. Höfundar telja að ástæðu þess megi rekja til hefts aðgangs að gjaldeyri og því hafi innflutningsaðilar ekki bolmagn til þess að flytja inn nægilegt framboð af hassi og framleiði þess í stað staðkvæmdarefnið maríjúana.
3) Gengi íslensku krónunnar féll töluvert árið 2001 þegar hún var sett á flot og einnig árið 2006 vegna lausafjárkrísu. Þessar gengisbreytingar skiluðu sér ekki út í verðlag fíkniefna líkt og gerðist árið 2008 þegar að gjaldeyrishöft voru sett á. Þetta bendir til þess að gengislækkun og gjaldeyrishöft hafi haft samverkandi áhrif til hækkunar á verði fíkniefna tímabilið 2008-2009.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
