eyjan.is

Miðvikudagur 23.06.2010 - 11:51 - Ummæli ()

Ný hjúskaparlög taka gildi hjá kirkjum landsins á sunnudaginn kemur

Hjónaband hvaða tveggja einstaklinga sem er leyfilegt frá sunnudeginum

Ný hjúskaparlög sem samþykkt voru frá Alþingi fyrir skömmu og taka gildi á sunnudaginn kemur munu ennfremur taka gildi til reynslu frá og með sama tíma. Var þetta samþykkt á biskupafundi fyrr í vikunni. Þar með geta hvaða tveir einstaklingar látið gefa sig saman í stað karls og konu eins og eldri lög og kirkjulög gerðu ráð fyrir.

Er verið að leggja lokahönd á nýja hjónavígsluformið sem sent verður til allra presta Þjóðkirkjunnar fyrir helgi. Tekur það mið af nýju lögunum og verður heimilt að nota það fyrir öll pör er biðja um hjónavígslu. Eftir sem áður gildir þó einnig það form sem er í Handbók kirkjunnar.

Nýju lögin og form þeirra verður lagt fyrir kirkjuþing í haust.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is