eyjan.is

Fimmtudagur 24.06.2010 - 12:08 - Ummæli ()

Betri stofa RÚV vegna HM í knattspyrnu kostar tæpar þrjár milljónir króna

Betri stofa HM kostar RÚV tæpar þrjár milljónir króna

Í viðbót við milljóna fjárfestingu Ríkisútvarpsins vegna sýningarréttarins frá Heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu eyðir stofnunin tæpum þremur milljónum króna til í svokallaða Betri stofu sína. Þar ráða þeir Þorsteinn J. Vilhjálmsson og svokallaðir sérfræðingar ríkjum og fara yfir hvern og einn leik á mótinu.

Eyjan fór fram á við RÚV að fá uppgefið hversu fjárfrek Betri stofan væri þann mánuð sem Heimsmeistaramótið stendur yfir og fékk þau svör að 2,8 milljónir króna væru eyrnamerktar í verkefnið.

Mikið hefur verið gagnrýnt skortur á kvenfólki í umræddri Betri stofu en þar sitja aðkeyptir spekingar í viðbót við nokkra íþróttafréttamenn RÚV og lesa í hvern og einn leik. Fá þessir spekingar greiðslur fyrir sem samkvæmt upplýsingum Eyjunnar eru ágæt mánaðarlaun en RÚV vill ekki gefa nákvæm laun þeirra upp.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is