Þórlindur Kjartansson, fyrrverandi formaður SUS og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi landsfund flokksins harðlega í fréttum Stöðvar 2 í kvöld og sagði lítið rúm fyrir gagnrýnar umræður. Þá sagði hann illa staðið að skipulagi fundarins.
„Þessi landsfundur er í raun algjört djók. Venjan er sú að sjálfstæðismenn komi saman, skapi stefnu en á þessum fundi á að lesa upp fyrir menn hver stefnan er og í raun eina leið fyrir menn að koma sér á framfæri er ef þeir eru svo óforskammaðir að bjóða sig fram á móti forystunni og þá fá þeir að tala klukkan 9:15 að morgni,“ sagði Þórlindur í fréttatímanum. Þá sagði hann af sem áður var þegar landsfundur Sjálfstæðisflokksins var opinn vettvangur fyrir umræðu.
„Flokkurinn hefur alltaf haft þá sérstöðu að það er tekist almennilega á um mál, bæði í litlum hópi og fyrir stórum hluta landsfundargesta. En að þessu sinni hefur verið ákveðið að sleppa því öllu saman. Væntanlega þykir mönnum það eitthvað óþægilegt fyrir forystuna að einhverjir aðrir en hún hafi skoðanir á stefnu flokksins og að þessu sinni virðist menn hafa ætlað að sleppa við það.“
Þórlindur segir vanta skýra stefnumörkun hjá flokknum: „Maður hefði haldið að Sjálfstæðisflokkurinn færi út í það að skilgreina stefnu sína almennilega, ekki eins og staðan sé mjög góð hjá flokknum eða þjóðfélaginu, en í staðinn er haldinn fundur sem ég vil meina að sé algjört djók.“

