Laugardagur - 26.6 2010 - 06:43 - Ummæli ()

Biskup biður samkynhneigt fólk um fyrirgefningu

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, biður samkynhneigða fyrirgefningar á ummælum, sem hann lét falla á sjónvarpsstöðinni NFS fyrir fjórum og hálfu ári, um að yrði hjónabandið ekki lengur skilgreint sem samband karls og konu, yrði því kastað á sorphauginn.

„Orð mín í hita leiksins hafa valdið sárum og ég biðst fyrirgefningar á því,“ segir biskup í samtali við Fréttablaðið. Hann segir mikið vatn hafa runnið til sjávar síðan og hvetur fólk til að horfa fram á veg og taka höndum saman um hjónabandið, í ljósi þess að niðurstaða sé fengin í málið og Alþingi hafi leyft hjónaband samkynhneigðra. Fyrstu samkynhneigðu pörunum verður heimilt að ganga í hjónaband samkvæmt nýjum lögum á morgun, sunnudag.

„Þetta er elsta stofnun mannlegs samélags og það skiptir miklu máli að fólk vill festa ráð sitt og standa við sínar dýrmætustu skuldbindingar. Það er aðalmálið.“

Árið 2006 sagði hann að ef hjónabandið yrði ekki lengur skilgreint sem hjónaband karls og konu væri eitthvað nýtt orðið til og hið sígilda hjónaband „afnumið“. Hugtakinu væri þar með hent á sorphaugana.

„Orð mín í hita leiksins hafa valdið sárum og ég biðst fyrirgefningar á því,“ segir biskup. Mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan.

„Þetta var tilvísun í að verið væri að gjörbreyta stofnun sem á sér mjög fornar rætur og skilgreiningu. Það var út af fyrir sig óheppilega orðað, eins og ýmsar athugasemdir sem falla í hita leiksins,“ segir hann. Of mikið hafi verið gert úr þessum orðum sínum.

Spurður hvort hann hafi skipt um skoðun og telji ekki lengur að hjónabandið bíði hnekki við það að samkynhneigðir taki þátt í því, segir Karl að sitt sýnist hverjum um niðurstöðu Alþingis.

„Ýmsir, þar á meðal ég, vildu halda í hefðina. Ég var oft í vafa um hvað væri rétt og rangt í þessum efnum,“ segir hann. Á endanum hafi Karl „tekið afstöðu með hefðinni“. Hann hafi talið það skyldu sína.

„En íslenskt samfélag vildi það ekki, heldur vildi breyta þessari hefð og þessari skilgreiningu,“ segir biskup.

Karl leggur áherslu á að hann hafi með orðum sínum ekki ætlað að særa samkynhneigða. Af og frá sé að hann hafi viljað standa gegn þeim í réttindabaráttu þeirra.

„En nú er komin niðurstaða og skiptir miklu máli að við tökum höndum saman um að styðja við hjónabandið og fjölskyldurnar í landinu. Þetta er elsta stofnun mannlegs samfélags og það skiptir miklu máli að fólk vill festa ráð sitt og standa við sínar dýrmætustu skuldbindingar. Það er aðalmálið,“ segir biskup.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar