Ragnar: Lára V. vanhæf sem settur saksóknari í búsáhaldamálinu
Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra af þeim níu sem ákærðir hafa verið fyrir árás á Alþingi, segir Láru V. Júlíusdóttur vanhæfa til að starfa sem settur saksóknari í málinu vegna þess að Alþingi hafi valið hana til í stjórn Seðlabankans.
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins sagði Ragnar að Lára væri sérlegur trúnanaðmaður Alþingis, sem væri bæði kærandi málsins og upphafsmaður að því og jafnframt hinn meinti brotaþoli samkvæmt áliti ákæruvaldsins.
„Settur saksóknari hefur verið valinn af Alþingi til að sitja í stjórn Seðlabanka Íslands og er því í ákveðnu trúnaðarsambandi við Alþingi og gegnir ákveðnum skyldum gagnvart því, að mínu áliti, og því geta skjólstæðingar mínir ekki sætt sig við að hún gefi út ákæru í málinu og reki það,“ sagði Ragnar.
Hann hefur því krafist þess að hún víki úr embættinu og var málið tekið fyrir í Héraðsdómi í morgun.
„Auðvitað kann að vera að nýr saksóknari muni breyta um stefnu og gefa út nýja ákæru og hann muni síðan láta verjendum í té öll þau gögn sem til eru og öll þau sögn sem þeir eiga rétt á. Fram að þessu hefur verið í komið í veg fyrir að verjendur fengju öll þau gögn sem ég tel að þeir hafi rétt á. Upplýsingar hafa þeir ekki heldur fengið, sem þeir eiga rétt á. Ég mun krefjast úrskurðar um hvert það málefni sem ég tel að ég þurfi að fá úrskurð um og fara með það til Hæstaréttar ef ekki vill betur til,“ sagði Ragnar Aðalsteinsson.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

