
Maðurinn segir þrjú fjármögnunarfyrirtæki skulda sér samtals fimm milljónir króna og ætlar að gjalda í sömu mynt.
Gengislánaskuldari kveðst hafa farið inn á geymslusvæði Lýsingar í nótt og dregið þaðan bíl til tryggingar endurgreiðslu frá Lýsingu. Hann gefur Glitni sjö daga frest til að veita sér tryggingu fyrir endurgreiðslu og segist ekki ætla að láta það líðast að níðst verði á verkalýðnum til að bjarga fjármálageiranum úr kreppunni.
Maðurinn vildi ekki segja til nafns þegar rætt var við hann í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Hann telur fjármögnunarfyrirtækin þrjú, Lýsingu, SP fjármögnun og Glitni, skulda sér samtals um 5 milljónir. „Það varð hrun og má alþýðan ekki standa á sínum rétti. Hve lengi eiga þessi fyrirtæki að fá að halda áfram að níðast á verkalýðnum og stela af alþýðunni. Ég ætla ekki að gefa þeim meiri frest.“
Maðurinn kveðst hafa í sinni vörslu tæki frá SP fjármögnun , auk bílsins sem hann hafi tekið frá Lýsingu í nótt. SP Fjármögnun kannast þó ekki við að tæki hafi horfið af sínu geymslusvæði. Hann segist einnig hafa verið í viðskiptum við Glitni og hótar því að taka einnig tæki frá bankanum fái hann ekki tryggingu fyrir endurgreiðslu innan sjö daga.
En af hverju vill hann ekki bíða endanlega niðurstöðu dómstóla sem vænta má snemma í haust?
„Ég er ekki að stela af Lýsingu frekar en Lýsing stal af mér. Ég er að beita sömu aðferðum og þeir beittu á mig. Þeir töldu mig skulda sér fé og tóku hluti frá mér. Nú svara ég í sömu mynt.“
