Viðskipti Sunnudagur - 4.7 2010 - 19:41 - Ummæli ()

Landsbankinn spáir enn lækkandi fasteignaverði. 150 þús. fermetrinn

Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu á eftir að lækka en frekar ef spár sérfræðinga Landsbankans ganga eftir. Sömu spár voru notaðar til að réttlæta allt að 75 prósent afslátt á fasteignalánum þegar þau voru færð úr gamla bankanum í þann nýja.

Þetta er því ekki opinber spá Landsbankamanna, en fréttastofa Stöðvar 2 hefur heimildir fyrir því að Nýi Landsbankinn hafi tekið fasteignalán gamla bankans yfir á þessum forsendum. Samkvæmt þessum spám fer fasteignaverð niður í 150 þúsund krónur á fermetrann en fermetraverðið er nú um 220 þúsund krónur að meðaltali. Markaðurinn á því enn töluvert í botninn ef marka má spá Landsbankans.

Hafa ber í huga að það var nýja bankanum í hag að spá svo lágu verði til þess að geta rökstutt afslátt á lánasafninu. Með því gat bankinn fengið allt að 75 prósent afskrifaðar af fasteignalánum sem flutt voru úr hinum gamla gjaldþrota banka yfir í hinn nýja. Engu að síður hefur bankinn ekki séð sér fært að afskrifa hluta þess til viðskiptavina.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar