Þriðjudagur - 6.7 2010 - 10:20 - Ummæli ()

Einar Karl hafnar Inspired-spillingartali

Einar Karl Haraldsson, formaður framkvæmdanefndar átaksins Inspired by Iceland, hafnar því algerlega að spilling hafi átt sér stað varðandi val á auglýsingastofum fyrir útboð kynningarátaksins. Hann segir val á auglýsingastofum hafa farið eftir eðlilegum farvegum, miðað við þann flýti sem þurfti að viðhafa og að neyðarákvæði í lögum um útboð hafi átt við.

Sólveig Dagmar Þórisdóttir, sem rekur Auglýsingastofu Íslands ehf, skrifaði bloggfærslu í gær þar sem hún ber Einar Karl þungum sökum um spillingu og bendir á að tvær útvaldar auglýsingastofur hafi fengið 300 milljóna króna auglýsingapakka af skattfé án opins útboðs. Sólveig segir Einar Karl hafa tekið fálega í athugasemdir hennar: „Hann hringdi í mig fimm dögum eftir að ég lagði inn skilaboð til hans. Hann hló að mér þegar ég bað hann um skýringu á því af hverju væri ekki opið útboð fyrir starfandi auglýsingastofur. Einar Karl bar fyrir sig tímaleysi vegna eldgossins„. Sólveig bendir á að lög kveði á um útboð ef verðmæti verkefnis er yfir 20 milljónir króna.

Einar Karl vill ekki tjá sig um tveggja manna tal eða svara Sólveigu nánar aðsinni. „Staðreyndin er sú að það þurfti að drífa þetta átak í gang og neyðarákvæðið í lögum um útboðsmál átti fyllilega rétt á sér. Það var nokkuð flókið mál hvernig farið var af stað með val samstarfsaðila, en frá því verður greint skilmerkilega í skýrslu sem við sendum frá okkur í ágúst. Fyrst hafi fimm auglýsingastofur verið í myndinni, en að lokum tvær, Fíton og Íslenska auglýsingastofan. „Verkefnið var skilgreint upp á nýtt, þannig að ferðamálafyrirtækin framleiða efnið og velja auglýsingastofur, en hið opinbera sér um dreifinguna“.

Ekki eru allir sannfærðir um gildi átaksins, en Einar Karl er ekki í vafa. „Þetta hefur gengið ótrúlega vel og afrek hvernig þessu var komið af stað og hvernig allt hefur virkað. Ferðamönnum hafði snarfækkað og bókanir stöðvast, en þetta hefur snúist við og nú er stöðugur stígandi upp á við, þannig að haustið lítur mjög vel út. Það hjálpaði auðvitað að gosið hætti!“ segir Einar Karl.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar