Páll Magnússon útvarpsstjóri RÚV segir í viðbrögðum við ásökunum Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum að svokallaðar „léttölsauglýsingar“ séu löglegar og að nær væri að beina spjótunum að Alþingi en RÚV.
Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa sent RÚV bréf og lögreglunni tilkynningar vegna áfengisauglýsinga í tengslum við HM í fótbolta, en samtökin telja RÚV spyrða saman „með einstaklega óviðeigandi hætti“ heimsmeistarakeppninni og áfengisauglýsingum.
„Það er best að taka það fram strax að persónulega skil ég og styð eindregið viðleitni Foreldrasamtakanna til að sporna gegn drykkju barna og unglinga,“ segir Páll, en kveður það ekki á valdi RÚV að setja aðrar takmarkanir á auglýsingar af þessu tagi en gert er í lögum. „Og hvort sem mönnum líkar betur eða verr eru hinar svokölluðu „léttölsauglýsingar“ löglegar – lögin séu sett á Alþingi. „Mér finnst reyndar sérkennilegt að meginþungi baráttunnar skuli ekki vera á þeim vettvangi. Þar er lögum breytt – ekki í Ríkisútvarpinu“.
Páll egir RÚV hafa uppi eftirlit með auglýsingum af þessu tagi og margoft hafnað birtingu þeirra sem taldar eru brjóta í bága við lög. „Þetta eftirlit getur hins vegar brugðist og það gerðist því miður í því tilviki sem Foreldrasamtökin gera að umtalsefni. Af því tilefni höfum við hert okkar eigin eftirlit og sent viðkomandi auglýsanda harðorða athugasemd og viðvörun“. Páll vísar þarna til tilviks þar sem orðið „léttöl“ birtist ekki í auglýsingu frá Ölgerðinni í hálfleik leiks í heimsmeistarakeppninni í fótbolta.
