Líka dökkar hliðar á Facebook. Nauðgarar finna þar fórnarlömb

Samskiptavefurinn Facebook getur verið varasamur
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í maí síðastliðnum mann í fangelsi fyrir ítrekaðar og afar ógeðfelldar nauðganir á nokkrum stúlkum allt niður í þrettán ára gömlum. Það sem gerir málið merkilegt er að maðurinn komst í kynni við öll fórnarlömb sín gegnum samskiptavefinn Facebook.
Fréttablaðið greinir frá þessu en maðurinn hlaut fimm ára dóm fyrir.
Þykir þetta enn eitt dæmið um hve ríkan þátt samskiptavefir skipta hjá mörgum í dag og ekki síst hjá ungu fólki. Þetta vita margir sem hugsa annarlegar hugsanir og sækja þangað í stríðum straumum.
Umræddur maður mælti sér mót við stúlkurnar gegnum Facebook enda má sjá þar mynd og oftast myndir af öllum er þar eru. Voru brot hans óvenju ógeðfelld og snérust ekki aðeins um nauðgun á afar ungum stúlkum heldur einnig kynferðisbrot gegn barni.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
