Hestapestin illræmda: Ekki öll hross virðast mynda ónæmi. Sýkjast aftur

Hestapestin virðist erfiðari við að eiga en menn áttu von á
Þess eru dæmi að hross sýkist af aftur af hestapestinni svonefndu eftir að hafa náð sér. Lítur þannig út fyrir að ekki öll hross geti myndað ónæmi gegn bakteríunni sem pestinni veldur. Ítrekað er fyrir eigendum hesta að halda veikum hrossum alveg sér jafnvel þó þau virðist hafa náð sér að fullu.
Morgunblaðið fjallar um þetta en það hefur komið mönnum á óvart að mörg hross veikjast aftur af pestinni.
Segir Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir, að ekki sé þetta staðfest með rannsóknum en mjög sterkar vísbendingar bendi til að svo sér. Það stemmi ennfremur við samsvarandi sýkingar erlendis en reynslan þar sýnir að fjórðungur hrossa myndar ekki ónæmi gagnvart pestum af þessu taginu. Pestin einkennist fyrst og fremst af hósta og smitast við snertingu.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
