eyjan.is

Viðskipti Þriðjudagur 20.07.2010 - 16:06 - Ummæli ()

Björk segir forstjóra Magma reyna að kaupa sig með hlutabréfum

Björk Guðmundsdóttir sendir Ross Beaty, forstjóra Magma Energy tóninn í opnu bréfi á síðunni Grapevine í dag. Hún segir forstjórann hafa boðið sér að kaupa 25% hlut í Magma í þeirri von að hún léti af andstöðu við kaup fyrirtækisins á HS Orku. Hún hafi engan áhuga á slíku, enda snúist baráttan um að fyrirtækið verði ekki einkavætt og því skilji forstjórinn ekkert hvað hún er að fara. Þá segir hún forstjórann afhjúpa tilhneigingu sína til að sniðganga lög og reglur.

Ross Beaty er sagður hafa boðið Björk að kaupa 25% hlut í HS Orku, á sömu kjörum og íslensku lífeyrissjóðunum bauðst. Björk segir hann ekkert skilja út á hvað barátta þeirra gegn sölunni gengur.

Bréf Bjarkar til Ross Beaty er svohljóðandi:

„Kæri Ross, Ég fékk frá þér skilaboðin. Það að þú skulir bjóða mér hlutabréf í HS Orku sýnir að þú skilur ekkert hvað ég er að tala um. Ég tel að það eigi ekki að einkavæðia fyrirtækið, það á að afhenda það þjóðinni að nýju. Af þeim sökum hef ég engan áhuga á að eignast þessi hlutabréf.

En ef ég fengi sömu kjör og þú, 70% kúlulán frá Íslendingum til að kaupa afnot af þeirra eigin auðlindum, þá myndi ég kannski hugsa minn gang, hver myndi ekki gera það? Þú borgar ekki í samræmi við orð þín, er það?“

Undir þetta kvittar Björk, en bætir svo við P.s.:

„Ég sá líka í Financial Times að baðst mig, persónulega, að koma á fund á skrifstofu þinni og að þú myndir stytta leigutímann á auðlindum okkar. Þetta undirstrikar enn og aftur hvernig þú ert tilbúinn að gera samninga sem brjóta í bága við lög og reglur.“

Yfir sex þúsund skráð sig á undirskriftalista

Björk og félagar hafa hleypt af stokkunum undirskriftasöfnum á síðunni orkuauðlindir.is, en þar er skorað á stjórnvöld að koma í veg fyrir söluna á HS Orku og skorað jafnframt á Alþingi að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is