Könnun: Ríkisstjórnin hugar meir að afkomu bankanna en heimilanna
Um 70% svarenda í nýrri könnun Markaðs- og miðlarannsókna ehf (MMR) telur að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu banka en afkomu heimilanna í landinu. Aftur á móti telur minna en þriðjungur landsmanna að stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en ríkisstjórnin. Innan við 16% eru sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings.
Könnun MMR gefur nánar tiltekið til kynna að rúmlega 70% séu frekar eða mjög sammála því að að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu banka en heimilanna í landinu. Þeir sem styðja ríkisstjórnina eru þó síður á þeirri skoðun en þeir sem styðja hana ekki, því 38,1% þeirra sem styðja ríkisstjórnina eru frekar eða mjög sammála því að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu banka en heimilanna í landinu borið saman við 87,1% þeirra
sem styðja hana ekki.
Einungis 15,8% eru frekar eða mjög sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings, meðan 64,1% eru frekar eða mjög ósammála því. Ef litið er til stuðnings við ríkisstjórnina, þá eru 38,7% þeirra sem segjast styðja ríkisstjórnina frekar eða mjög sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings borið saman við 5,7% þeirra sem styðja hana ekki. Um 30% eða 29,3% eru frekar eða mjög sammála því að stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en ríkisstjórnin en 45,2% eru frekar eða mjög ósammála því.
Þá kemur fram hjá MMR að um 61% svarenda séu ósammála því að tilmæli Seðlabanka og FME um vaxtaviðmið vegna gengistryggðra lána hafi verið sanngjörn.
Könnunin fór fram dagana 7.-12. júlí. Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

