Segir Björgólf Thor enga ábyrgð bera á Landsbankanum og Icesave
Björgólfur Thor Björgólfsson ber enga ábyrgð á Icesave-reikningunum, fullyrðir Ragnhildur Sverrisdóttir upplýsingafulltrúi Björgólfs/Novators í samtali við Eyjuna. Aðspurð hvort almenningur muni ekki eiga bágt með að trúa slíkri fullyrðingu, meðal annars vegna yfirlýsinga Björgólfs Thors á sínum tíma um aðkomu sína að tilraunum til að koma Icesave undir breska lögsögu innistæðutrygginga segir Ragnhildur að aðkoma Björgólfs að því, skömmu fyrir hrun, hafi ekki verið vegna Icesave-reikninganna sem slíkra heldur vegna viðræðna um sameiningu banka.
„Björgólfur kom ekki að rekstri Landsbankans, hann sat ekki í stjórn og hreinlega mátti ekki skipta sér af málefnum bankans. Hann vissi ekkert um þessa Icesave-reikninga og aðkoma hans að viðræðum í London síðustu dagana fyrir hrun, þegar mikið gekk á, var vegna hugmynda um sameiningu banka,“ segir Ragnhildur. Hún bendir á að grundvallarmunur sé á því hvernig menn höguðu sér fyrir og í kringum hrunið. „Sumir fóru offari og höguðu sér á þann hátt sem með ólíkindum er, en það á ekki við um Björgólf Thor. Ekkert hefur komið fram um annað en að Björgólfur Thor hafi farið rétt að í einu og öllu,“ segir Ragnhildur.
Uppgjör erlendra og íslenskra banka við Björgólf Thor Björgólfsson athafnamann nær til skulda hans og fjárfestingarfélags hans, Novators. Björgólfur og Novator eiga hlut í ýmsum félögum, t.d. Verne, CCP og ekki síst Actavis, sem er lang stærsti hlutinn, og eru þessi félög liður í uppgjörinu. Ragnhildur segir að arður af félögunum og söluverðmæti, þegar og ef þau verða seld, muni ganga til greiðslu á skuldunum.
Aðspurð hvort lán frá Búnaðarbankanum til Samsonar vegna kaupanna á Landsbankanum við einkavæðingu væru inni í uppgjörs-pakkanum sagði Ragnhildur að þessi spurning væri á misskilningi byggð. „Lán Samson hjá Búnaðarbankanum var gert upp í ársbyrjun 2005. Síðan liðu 9 mánuðir og margt gerðist á þeim tíma, en í árslok 2005 var tekið lán hjá Kaupþingi banka, þar sem feðgarnir voru í persónulegum ábyrgðum. Björgólfur eldri varð gjaldþrota og ábyrgðirnar lentu hjá Björgólfi Thor og þetta lán er hluti af þessu uppgjöri,“ segir Ragnhildur.
Ekki fæst uppgefið hversu stóran hlut í Actavis Björgólfur Thor heldur, en hann mun áfram sitja í stjórn fyrirtækisins.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
