Feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson eru taldir á meðal sjö helstu skúrka efnahagskreppu heimsins, að mati franska vikuritsins Marianne.
Flennifyrirsögn blaðsins er: „Björgólfur Guðmundsson og sonur hans Thor. Víkingarnir – skemmdarvargar bankanna“.
Svo segir í undirfyrirsögn: „Íslensku bankamennirnir sem eyðilögðu trúverðugleika landa sinna höfðu áður sýnt að þeir væru varasamir skaðvaldar“
Blaðið fer hörðum orðum um feðgana, einkum vegna falls Landsbankans og Icesave-skuldarinnar, sem enn vofir yfir íslensku þjóðinni.
Tókst hið ómögulega: Að koma landinu á hryðjuverkalista og undir stjórn AGS
„Aðeins sex árum eftir að þeir eignuðust stærsta ríkisbanka landsins hafði hinum hvatvísa Björgólfi Guðmundssyni og syni hans Thor tekist hið ómögulega – að keyra íslenskt efnahagslíf í gjaldþrot með þeim afleiðingum að landið þarf að gangast undir verndarvæng Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ásamt því að koma landi sínu á lista Breta yfir hryðjuverkaþjóðir.“
Blaðið segir að feðgarnir hafi látið innstæður 290 þúsund sparifjáreigenda Icesave reikninganna hverfa. Þá leynir hneykslunartónninn sér ekki þegar segir að Björgólfur Guðmundsson hafi „vogað sér að segja íslensku rannsóknarnefndinni að hans eiginn banki hafi verið stoltur af því að lána sér gríðarlegar fjárhæðir“. Í því samhengi telur blaðið Björgólf slá frægustu svikahrappa sögunnar út, þá Charles Ponzi og Bernard Madoff.
Þá rekur blaðið stuttlega að Björgólfur hafi hlotið dóm í Hafskipsmálinu árið 1991 og gerir grín að því að þá þegar hafi Útvegsbankinn orðið gjaldþrota vegna skipafélagsins sem hann stýrði. Hann hafi þá sest að í Rússlandi og snúið aftur ásamt syni sýnum með 350 milljónir dollara í vasanum.
Hneykslunartónn blaðsins heldur áfram þegar rifjað er upp að feðgarnir hafi fengið Landabankann á vildarkjörum, en síðar hafi komið í ljós að þeir greiddu aldrei kaupverðið, heldur fengu það að láni frá öðrum íslenskum banka. Ekki nóg með það, heldur hafi þeir síðan rekið Landsbankanna þannig, að bankinn lánaði þeim sjálfum meiri peninga en hann átti í fórum sínum!
Blaðið heldur háði sínu áfram og segir Björgólf eldri hafa sett annað skipafyrirtæki á hausinn, en samt sem áður hafa keypt West Ham fótboltaliðið – allt út á peninga sem ekki voru til. Á meðan tók hinn skeggjaði og snyrtilega klæddi sonur hans þátt í nýaldarráðstefnu fína fólksins í Davos, þar sem hann kynnti „book-of-love“ fræði sín um framtíð hátækniiðnaðarins í Veuve-Clicquot kampavínsboðum.
Hefðu getað bjargað íslensku þjóðinni

Franska blaðið Marianne rekur feril Björgólfsfeðga í hæðnistón. Segir Björgólf eldri hvatvísan fótboltaáhugamann en soninn bera vel snyrtan skeggvöxt og ávallt flottur í tauinu.
Þá segir blaðið að Landsbankanum hafi borist viðvaranir frá breskum og hollenskum yfirvöldum um að í óefni stefndi með Icesave reikningana. Þeir hafi látið það sem vind um eyru þjóta og gefið í á því sviði í stað þess að draga úr. Síðasta glæsiverkið hafi svo verið þegar Björgólfur Thor fékk 153 milljónir evra að láni frá gjaldþrota bankanum korteri fyrir hrun hans.
Að sögn blaðsins fer Björgólfur eldri varla úr húsi í dag nema til að sjá eftirlætis fótboltalið sitt (KR) spila. „Nokkuð betur fer um Björgólf Thor sem býr í Lundúnum, en bað íslensku þjóðina afsökunar… í gegnum fjölmiðlafulltrúa sinn,“ skrifar blaðið.
Þetta var þriðja umfjöllun blaðsins um sjö helstu skúrka heimskreppunnar. Fyrstur fyrir valinu varð Kostas Karamanlis, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, og olli umfjöllun blaðsins nokkru fjaðrafoki í Grikklandi, einsog lesa má hér.
Blaðið hefur kynnt að í næstu viku verði tekinn fyrir franski milljarðamæringurinn Marc Ladreit de Lacharriere, sem m.a. er einn helsti eigandi Fitch Ratings.
