
Björgólfur Thor: Allir geta keypt og keypt fyrirtæki, með því að borga bara nógu hátt verð, en galdurinn er að selja aftur á hærra verði. Útrásarvíkingarnir seldu aldrei neitt.
Björgólfur Thor Björgólfsson, telur rangt að flokka sig með þeim sem nefndir hafa verið útrásarvíkingar. Hann hafi, þvert á móti, komið utan frá inn í íslenskt viðskiptalíf og hafi „mokað inn milljörðum evra“ í íslenskt efnahagslíf. Þá gagnrýnir hann viðskiptamódel útrásarvíkinganna, sérstaklega Baugs og tengdra aðila, sem hafi bara keypt og keypt fyrirtæki, en aldrei selt neitt af viti.
Þetta er á meðal þess sem fram kemur í viðtali Viðskiptablaðsins við Björgólf Thor, en Eyjan hefur vitnað í fleiri orð hans í gærkvöld og fyrr í dag.
Björgólfi Thor finnst rangt að setja alla, sem hafa verið áberandi í viðskiptalífinu undanfarin ár, undir sama hatt. Það hafi verið gert bæði fyrir hrun og þannig sé það ennþá í dag.
„Ég legg áherslu á að klára mín mál með sóma og aðskilja mig frá þeim sem voru í miklum þykjustuviðskiptum hér síðustu ár fyrir hrun,“ segir Björgólfur Thor.
„Menn gera ráð fyrir að allir hafi hagað sér eins og geri það enn. Það þarf hins vegar að skoða hlutina í réttu ljósi. Ég kom heim með milljónir dala í reiðufé þegar ég byrjaði að fjárfesta hér á landi. Ég var á allt öðrum stað en nokkur annar gerandi eða fjárfestir hér á landi. Það sem ég er að reyna að segja er að ég er á allt öðrum stað en flestir þeir sem hafa verið áberandi í viðskiptalífinu síðustu ár, ég byrjaði á öðrum stað og verð á öðrum stað en þeir sem eru að forðast það í lengstu lög að gera upp sínar skuldir og forðast alla ábyrgð.“
Hann segist því kunna því illa að vera kallaður útrásarvíkingur, það sé rangnefni í hans tilfelli.
„Já, enda er ég ekki útrásarvíkingur. Ég var ekki að flytja út peninga. Ég kom með töluvert fjármagn inn í landið síðustu ár, raunar í svipuðum mæli og aðrir töldu sér sæmandi að flytja fé úr landi. Þegar ég tók Actavis af markaði [haustið 2007] mokaði ég inn milljörðum evra frá erlendum bönkum inn í kerfið hér heima. Einhvern veginn kjósa menn alltaf að horfa framhjá því. Heildarverðmæti viðskiptanna voru um 5,3 milljarðar evra og þar lagði Novator fram um einn milljarð evra sem eigið fé,“ segir Björgólfur Thor.
Gagnrýnir viðskiptamódel Baugs – seldu aldrei neitt
Einsog Eyjan greindi frá í morgun, þá frábiður Björgólfur Thor sér umtal um að hafa verið nokkurskonar skuggastjórnandi í Landsbankanum. Þvert á móti hafi samband hans við Sigurjón Árnason, bankastjóra, verið stirt og hann hafi litið á hann sem „Svarta-Pétur“ í bankanum. Sérstaklega fannst Björgólfi Thor athugavert hve myndarlega Sigurjón lánaði til Baugs, þó að hann segist ekki hafa vitað hversu stórtækt það var.
„Mér fannst Baugur bara vera með eitt viðskiptamódel á þessum tíma; að auka við skuldir. Þeir voru sífellt að auka við skuldirnar, alltaf að kaupa og kaupa en ég sá þá aldrei selja einn einasta hlut. Mín aðal gagnrýni var sú að ég sá þá aldrei selja neitt. Það voru mín áhyggjuefni,“ segir hann.
Björgólfur Thor segir að það sem einkenni sín fjárfestingarviðskipti í gegnum tíðina sé að finna áhugaverð fyrirtæki, kaupa þau og gera verðmætari og selja þau svo á hærra verði. Þetta virðist ekki hafa verið ofarlega í huga íslensku útrásarvíkinganna, að hans mati.
„Menn voru sífellt að skuldsetja sig hér heima, keyptu og keyptu en seldu aldrei neitt. Mönnum var klappað á bakið og hrósað í fjölmiðlum fyrir að kaupa hin og þessi fyrirtæki og það voru taldar góðar fréttir. En það getur hver sem er keypt fyrirtæki ef hann borgar bara nægjanlega hátt verð. Kaupin eru ekki góðar fréttir, það er salan sem er góð frétt. Á þessu ári vorum við byrjaðir að losa til okkar fjármagn og töldum rétt að innleysa hagnaðinn. Ég hef alltaf talið að alvöru fjárfestar eigi ekki að sitja of lengi á hlutum heldur selja þá. Menn þurfa að selja reglulega til að greiða niður skuldir.“
Björgólfur Thor segir að þær ráðstafanir séu að skila sér í dag. Það breyti því þó ekki að hann hafi ekki séð bankahrunið fyrir, enda hafi það verið mun alvarlega og skelfilegra en nokkurn mann gat grunað.
„Mig grunaði ekki hvað var að fara að gerast fyrr en það gerðist. Mér datt ekki í hug að þetta gæti endað svona,“ segir Björgólfur Thor.
