Tæplega helmingur þeirra 3 þúsund landsmanna, sem birtast á listum Tekjublaðs Frjálsrar verslunar náði því að hafa yfir eina milljón króna í tekjur á mánuði á síðasta ári. Það er því ljóst að hrun og kreppa frá hausti 2008 hafa ekki snert tekjuhæstu íslendingana um of. Jafnframt má kannski segja, að viðmiðið um háar tekjur, milljón á mánuði, sé löngu úrelt orðið.
Fregnir berast nú um að áætlun um tekjur sumra einstaklinga sé of há vegna þess að auðlegðarskatti hefði á rangan hátt verið blandað inn í útreikninginn, en með þeim fyrirvara koma eftirfarandi einstaklingar fram á listum tímaritsins með meira en 10 milljónir króna á mánuði:
Geirmundur Kristinsson, fyrrum sparisjóðsstjóri í Keflavík, með 20,4 milljónir.
Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja, með 13,8 milljónir (líkl. ofmetið).
Árni Pétur Jónsson, fyrrum forstjóri Teymis, með 13,7 milljónir.
Óttar Pálsson, forstjóri Straums, með 11,3 milljónir.
Lárus Welding, fyrrum forstjóri Glitnis-banka, með 10,8 milljónir.
Einstaklingar á listunum með á bilinu 7,5 til 10 milljónir á mánuði eru:
Guðmundur A. Birgisson, bóndi að Núpum, með 9,9 milljónir.
Björn traustason húsasmíðameistari með 9,5 milljónir.
Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS, með 8,7 milljónir.
William Fall, fyrrum forstjóri Straums, með 8,6 milljónir.
Jón Sigurðsson, fyrrum forstjóri Stoða, með 8,2 milljónir.
Sævar Karl Ólason, kaupmaður og klæðskeri, með 8,2 milljónir.
Sigurður Nordal, verðandi framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar, með 7,9 milljónir.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, með 7.5 milljónir.
Þegar litið er til einstakra atvinnugreina eða starfsstétta og efstu einstaklingar skoðaðir koma meðal annars fram eftirfarandi athyglisverðu tilfelli:
Gunnlaugur Garðarsson, prestur Glerárprestakalls, með 5,7 milljónir.
Jón Ásgeir Jóhannesson, Baugsforkólfur, með 4,5 milljónir.
Pálmi Haraldsson í Fons með 4.5 milljónir.
Ólafur Guðmundsson augnlæknir með 4.5 milljónir.
Jóhann Gunnar Jóhannsson endurskoðandi með 4.5 milljónir.
Sigurður Hafstein hæstaréttarlögfræðingur með 4,2 milljónir.
Davíð Oddsson, fyrrum Seðlabankastjóri, Moggaritstjóri, með 3,8 milljónir.
Orri Hauksson, fyrrum hægri hönd Davíðs Oddssonar og Björgólfs Thors, með 3,8 milljónir.
Guðmundur Bjarnason, fyrrum forstjóri Íbúðalánasjóðs, með 3,5 milljónir.
Þorgeir Eyjólfsson, fyrrum forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, með 3 milljónir.
Þór Sigfússon, fyrrum forstjóri Sjóvár, með 2,9 milljónir.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, með 2,8 milljónir.
Elías S. Skúlason vélaverkfræðingur með 2,6 milljónir.
Þórhallur „Laddi“ Sigurðsson skemmtikraftur með 2,3 milljónir.
Kristín Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Gaums, með 2,2 milljónir.
Halldór Þ. Sigurðsson, flugstjóri Icelandair, með 2,1 milljónir.
Ásmundur Stefánsson, fyrrum bankastjóri Landsbankans, með 2 milljónir.
Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi í Árborg, með 1,7 milljónir.
Árni Sigfússon, bæjarfulltrúi í reykjanesbæ, með 1,7 milljónir.
Jónas Fr. Jónsson, ffyrrum forstjóri FME, með 1,7 milljónir.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, með 1,6 milljónir.
Willum Þór Þórsson knattspyrnuþjálfari með 1,3 milljónir.
Af fólki með undir 300 þúsund krónum á mánuði samkvæmt listunum má nefna:
Viggó H. Viggósson, framkvæmdastjóri Tölvudreifingar, með 286 þúsund.
Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum bankastjóri Landsbankans, með 265 þúsund.
Björgólfur Guðmundsson, fyrrum landsbankaforkólfur, með 252 þúsund.
Halldór J. kristjánsson, fyrrum bankastjóri Landsbankans, með 248 þúsund.
Egill Ólafsson tónlistarmaður með 248 þúsund.
Björgólfur Thor Björgólfsson, eigandi Novator og fleira, með 229 þúsund.
Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður með 190 þúsund.
Bjarni Harðarson, fyrrum þingmaður, bóksali Selfossi, með 120 þúsund.
það athugist að sumir ofangreindra „lágtekjumanna“ hafa lögheimili erlendis og greiða megnið af sínum sköttum til erlendra ríkiskassa.
