Yfir 200 bankamenn á Íslandi eru enn með meira en tvær milljónir á mánuði í laun. Þetta kemur fram í tekjublaði Frjálsrar verslunar, sem kom út í dag.
Jón G. Hauksson, ritstjóri blaðsins, telur athyglisvert að laun bankamanna hafi ekki lækkað meira en raun ber vitni. Minnti Jón á að þjóðfélagið hefði farið nánast á hliðina þegar Finnur Sveinbjörnsson var ráðinn bankastjóri Kaupþings skömmu eftir hrun með 1900 þúsund á mánuði. Laun hans voru síðan lækkuð vegna óánægjuöldu í þjóðfélaginu. Nú kemur í ljós að slík laun eru mjög almenn í bankakerfinu.
„Ég endurtek, meðallaun 200 efstu bankamanna eru yfir tvær milljónir á mánuði. Eftir allt þetta, það er búið að keyra alla bankana í rúst. Mér finnst það bara nokkuð vænlegt og vel gefið í. Ég bara segi það beint út,“ sagði Jón í spjalli á Rás 2.
Inn í þeim launatölum eru þó ekki fjármagnstekjur, til dæmis ekki mögulegur söluhagnaður af hlutabréfum. Sem fyrr eru tekjublöðin, sem nú koma út, gefin út með þeim fyrirvara að um fyrstu álagningu er að ræða. Hugsanlega eru einhverjar tekjur áætlaðar og kunna að breytast við kærufrest.
Hannes Smárason fannst ekki í athugun blaðsins og taldi Jón ljóst að hann væri alfarið fluttur úr landi.
Jón Ásgeir Jóhannesson er með 4,5 milljónir á mánuði. Lárus Welding er enn á ofurlaunum, var með 11 milljónir á mánuði í laun.
