Strákarnir í Gossip Girl sýndu bringuhárin sín með stæl síðasta miðvikudagskvöld en þó voru nokkur fylki á milli þeirra, sumir myndu segja heimsálfa.
Ed Westwick var í hrikalega flegnum bol í samkvæmi í Los Angeles en í New York var sjálfur Penn Badgley á frumsýningu myndarinnar Twelve.
Í henni leikur annað kyntröll úr Gossip Girl, Chace Crawford, sem er líka á myndunum hér fyrir neðan en þó án sýnilegra bringuhára.




