Samkvæmt RÚV er talið ólíklegt að nýr hæstaréttardómari verði skipaður fyrr en að nokkrum vikum liðnum þó skipa hafi átt dómara frá og með 1. ágúst. Umsóknarfrestur rann út um miðjan júní en fjögur sóttu um embættið. Það eru Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari, Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari, Viðar Már Matthíasson, settur hæstaréttardómari, og Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg. Hæfisnefndin, sem meta skal hæfi umsækjendanna fjögurra, tók til starfa fyrir nokkrum dögum en umsækjendurnir eiga kost á að gera athugasemdir við hæfi nefndarmanna auk þess sem þeir geta komið að frekari gögnum til nefndarinnar. Brynjar Níelsson, fulltrúi Lögmannafélagsins í nefndinni, segir í RÚV að þetta geti tekið nokkrar vikur.

