Ólafur Ísleifsson, lektor í hagfræði við HR, furðar sig á því að stjórnvöld hafi ekki fært sér í nyt innihald svarbréfs framkvæmdastjórnar ESB þess efnis að innistæðutryggingasjóðir nytu ekki ríkisábyrgðar og um að ranglega hefði verið staðið að uppsetningu innistæðutryggingasjóðakerfisins. Þessar upplýsingar styrki stöðu Íslands í Icesave-málinu.
Norski fréttavefurinn ABC Nyheter fjallaði í vikunni og um IceSave-málið og byggði greinin á bréflegum svörum Michels Barniers, fulltrúa í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, einsog Eyjan greindi frá í vikunni.
Ólafur segir í RÚV að bréfið styrki stöðu Íslands í Icesave-deilunni og viðbrögð ríkisstjórnarinnar hljóti að vera að notfæra sér það. Hann segir að orð Steingríms J. Sigfússonar um að þetta breyti engu veki nokkra furðu.
Barnier segir jafnframt í bréfi sínu að ranglega hafi verið staðið að innleiðingu á Evróputilskipun um innstæðutryggingasjóði. Ólafur segir að þetta komi á óvart og útskýra þurfi hvað hafi verið gert rangt. Upplýsa þurfi hvaða athugasemdir hafi komið fram á réttum vettvangi, hafi þær einhverjar verið.
