Laugardagur - 31.7 2010 - 18:59 - Ummæli ()

Jón Ásgeir: Leyfileg millifærsla og ekkert dómsmál í farvatninu

Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður segist hafa leyfi frá slitastjórn Glitnis til að selja eignir til að standa undir lögfræðikostnaði og daglegum útgjöldum. Hann gæti hins vegar átt á hættu að fá á sig fangelsisdóm, að því er fram kemur hjá formanni slitastjórnarinnar um hundrað milljónirnar sem Jón Ásgeir millifærði af reikningi sínum daginn eftir að alþjóðleg kyrrsetning á eignum hans tók gildi.

Jón Ásgeir segir fréttastofu Stöðvar 2 að hann hafi verið að greiða skuldir. Greiðslubeiðnin hafi verið lögð fram nokkrum dögum fyrir kyrrsetningu. Slitastjórn Glitnis fékk í gær úrskurð hjá dómara í London um kyrrsetningu þessara fjármuna, sem fóru til tveggja viðskiptafélaga hans og fyrirtækja tengdum þeim.

„Maður spyr sig hvað er skilanefndin í raun að fá út úr þessu, eða kröfuhafar Glitnis, ef ég má eyða öllum eignum í það að verja mig, sem mun örugglega verða niðurstaðan,“ segir Jón Ásgeir í viðtali við Stöð 2 og hafnar því að fangelsisdómur sé í kortunum. Stöð tvö vitnar í tölvupóst frá lögmanni hjá bresku stofunni Slaughter&May, sem starfar fyrir slitastjórn Glitnis, sem staðfesti að ekkert slíkt sé í farvatninu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar