Fimmtudagur - 5.8 2010 - 22:18 - Ummæli ()

Borgarstjórinn setti Hinsegin daga uppáklæddur í dragi

Þetta fáið þið með því að kjósa yfir ykkur trúð," sagði Jón Gnarr klæddur í kjól.

Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, mætti í dragi á opnun Hinsegin daga í Íslensku óperunni í kvöld. Kom hann uppáklæddur sem hefðarfrú með hárkollu og hliðarveski og setti þannig hátíðina.

Jón lét raunar ekki þar við sitja, heldur sagðist vera að opna hátíðina í fjarveru borgarstjóra. Hann væri einfaldlega upptekinn.

„Ætli hann sé kannski í Múmíndal? Þetta fáum við þegar við kjósum yfir okkur trúð,“ sagði Jón í gervinu og uppskar mikinn hlátur og gleði viðstaddra.

Dagskrá Hinsegin daga er hér.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar