Sunnudagur - 8.8 2010 - 09:03 - Ummæli ()

Kirkjan vill ekki leggja sitt af mörkum. Hafnar níu prósenta niður- skurðarkröfu

Kirkjan vill ekki skera niður eftir óskum ríkisins

Þjóðkirkjan hafnar þeim kröfum ríkisins að dregið verði saman í rekstri hennar um níu prósent eins og farið hefur verið fram á af hálfu stjórnvalda.

Var ályktun um þetta samþykkt á aukakirkjuþingi um helgina en kirkjunnar menn eru þó reiðubúnir til fimm prósenta niðurskurðar með ákveðnum skilyrðum.

Er kirkjan ein sú stofnun sem skera verður niður samkvæmt kröfum ríkisins og var gerð krafa um 9 prósenta niðurskurð en það hugnast mönnum illa samkvæmt fregn Vísis.

Segir í ályktun aukakirkjuþings að Þjóðkirkjan sé sjálfstæður lögaðili og grundvelli fjárhagslegra samskipta ríkis og kirkju verði ekki raskað nema með gagnkvæmum samningum sem bæði kirkjuþing og Alþingi samþykki. Fimm prósenta niðurskurður sé hámarkið en þó aðeins með takmörkunum og aðeins til eins árs.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar