eyjan.is

Viðskipti Miðvikudagur 11.08.2010 - 15:33 - Ummæli ()

Stjórnvöld krefja ESB svara um ríkisábyrgð á innstæðum. Ekkert fundað í Icesave

Íslensk stjórnvöld hafa sent bréf til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þar sem óskað er eftir skýringum á ummælum Michels Barniers, framkvæmdastjóra innri markaðar Evrópusambandsins, um að innistæðutryggingasjóðir njóti ekki ríkisábyrgðar. Ýmsir sérfræðingar telja að svör Barniers styrki stöðu Íslands í Icesave deilunni.

Líkt og Eyjan greindi frá í síðasta mánuði spurði norski fréttamiðillinn ABC Nyheter Michel Barnier, fulltrúa í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, út í ríkisábyrgð á bankainnstæðum og fékk þau svör að undir venjulegum kringumstæðum þyrftu ríki ekki að gangast í ábyrgð ef tryggingasjóðir standa ekki undir innstæðum.

Ýmsir hafa furðað sig á því síðustu vikur að íslensk stjórnvöld hafi ekki nýtt sér þetta svar Barniers, þar sem það ætti að þjóna hagsmunum Íslands ef framkvæmdastjórn ESB telur ríki ekki þurfa að gangast í ábyrgð. Einn þeirra er Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, sem segir að svör Barniers styrkja stöðu Íslands í Icesave-deilunni og viðbrögð ríkisstjórnarinnar hljóti að vera að notfæra sér það. Hann segir að orð Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, um að svör hans breyti engu veki nokkra furðu.

Undir þetta tekur Lárus Blöndal, sem mikið hefur fjallað um málið og á sæti í samninganefnd Íslands vegna Icesave.

Barnier sagði jafnframt í svari sínu til ABC Nyheter að ranglega hafi verið staðið að innleiðingu á Evróputilskipun um innstæðutryggingasjóði. Ólafur segir að þetta komi á óvart og útskýra þurfi hvað hafi verið gert rangt. Upplýsa þurfi hvaða athugasemdir hafi komið fram á réttum vettvangi, hafi þær einhverjar verið.

„En þarna er því alfarið hafnað að einhver slík ríkisábyrgð sé til staðar, heldur eingöngu sagt að ekki hafi verið rétt staðið að innleiðingu kerfisins, sem ég leyfi mér nú að efast um að sé rétt,“ sagði Lárus Blöndal.

Haft var eftir upplýsingafulltrúa fjármálaráðuneytisins í fréttum Rúv að bréf íslenskra stjórnvalda hefði ekki verið sent fyrr vegna sumarleyfa. Engin hreyfing hefði verið á málefnum Icesave að undanförnu, en reikna megi með að það breytist á næstunni eftir að sumarleyfum lýkur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is