eyjan.is

Fimmtudagur 12.08.2010 - 08:19 - Ummæli ()

Neitar að tjá sig um fjölda kynferðisbrota innan veggja kirkjunnar

Fjöldi kynferðisbrota innan kirkjunnar leyndarmál

Formaður þess fagráðs sem sér um meðferð kynferðisbrota innan kirkjunnar segist þakklátur fyrir áminningar um að gera betur en kirkjan hafi fyrir löngu tekið skýra afstöðu gegn kynferðisbrotum. Hann neitar að tjá sig um fjölda mála sem fagráðið hefur þurft að eiga við innan veggja kirkjunnar.

Fram kom í máli Gunnars Rúnars Matthíassonar, formanns fagráðsins, í kvöldfréttum RÚV að hann teldi þarft að fá áminningu um að gera betur í kynferðisofbeldismálum en dóttir Ólafs Skúlasonar, fyrrum biskups, sendi Biskupsstofu bréf þar sem hún brýndi fyrir kirkjunnar mönnum að gera enn betur í forvörnum gegn slíku ofbeldi.

Var ástæða þess bréfs upplýsingar um að einn starfsmaður kirkjunnar hefði verið látinn hætta sökum kynferðisofbeldis á síðasta ári.

Gunnar vildi þó ekkert segja til um málafjölda sem komið hefði á hans borð vegna slíkra mála. Þau væru þó fleiri en eitt.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is