Viðskipti Laugardagur - 14.8 2010 - 13:19 - Ummæli ()

Þór Saari: Snýst ekki um persónu Gylfa. Hann verður að fara

Þór: Málið snýst um að stjórnsýslan bjó yfir upplýsingum um að fjárhagsstaða fólks var allt önnur um stjórnsýslan sagði.

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, haldi áfram að segja ósatt og sé orðinn algerlega ótrúverðugur sem ráðherra. Hann gefur lítið fyrir útskýringar Gylfa á því hvers vegna hann hafi ekki upplýst þingheim um vitneskju sína um ólögmæti myntkörfulána.

„Ég gef lítið fyrir þessi svör Gylfa. Þetta voru upplýsingar sem beðið var um og hann upplýsti ekki um mjög mikilvæg atriði. Það er einfaldlega svona sem stjórnmálamenn bjarga sér út úr klemmu. Þetta er bara klassísk leið, menn eru með einhverjar upplýsingar í höndunum sem geta komið þeim eða ráðuneyti þeirra illa og þá svara þeir bara út í hött,“ segir Þór á mbl.is.

Hann segir að ráðherrann eigi ekki að láta þetta snúast um sína eigin persónu og að hann einfaldlega verði að taka pokann sinn.

„Ummæli hans standanst ekki skoðun miðað við það sem kojmið hefur fram í öllum þessum  bréfaskrifum innan stjórnsýslunnar. Það sem verra er, hann virðist halda að þetta snúist um hann sjálfan og hans persónu. Þetta snýst um það að á sama tíma og fjöldi íslenskra heimila lendir í alvarlegum fjárhagsvandræðum, fjöskyldur splundrast og fólk jafnvel tekur líf sitt út af fjárhagsvandræðum, þá býr stjórnsýslan yfir upplýsingum og leynir þeim, um það að samkvæmt íslenskum lögum þá er fjárhagsstaða þessa fólks allt önnur en þetta stjórnsýslan heldur fram,“ sagði Þór í hádegisfréttum Rúv.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar