eyjan.is

Sunnudagur 15.08.2010 - 11:46 - Ummæli ()

Þagnarskylda presta brýtur í bága við barnaverndarlög

Frá Prestastefnu.

Ákvæði laga um þagnarskyldu ganga ekki framar lögum um tilkynningarskyldu til barnaverndar og eru því prestar margir að brjóta lög. Höfnuðu prestar tillögu á Prestaþingi 2007 þess efnis að þagnarskylda leysi þá aldrei undan tilkynningarskyldu vegna brota á börnum.

Skýrir RÚV frá þessu en lögfræðingur Barnaverndarstofu segir fráleitt að prestar séu undanþegnir ákvæðum laga um tilkynningarskyldu. Breyti þar engu að þeir séu bundnir þagnareið.

Kemur umræða um þetta upp í kjöfar fleiri kynferðisbrotamála innan kirkjunnar eins og Eyjan greindi frá á föstudaginn var. Séra Geir Waage segir hins vegar að skyldur hans sem prests gangi lengra en mannanna boð og er ekki eini prestur landsins sem lítur á þagnarskyldu sem úrræði ofar tilkynningarskyldi.

Eyjan skýrði frá því fyrr í vikunni að Gunnar Rúnar Matthíasson, formaður fagráðs um meðferð kynferðisbrota innan kirkjunnar, vill ekki tjá sig um heildarfjölda þeirra brota sem nefndin hefur tekið á. Hann segir aðeins að um fleiri en eitt mál sé að ræða.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is