Þingmenn VG vara við hugmyndum Rögnu um rýmri rannsóknar-heimildir
Tveir þingmenn Vinstri grænna vara við hugmyndum um að rýmka rannsóknarheimildir lögreglu, þannig að hún geti hafið rannsókn án þess að rökstuddur grunur um brot liggi fyrir.
Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, hefur falið réttarfarsnefnd að semja tillögur í þessa veru og vitnar til gagna um skipulagða glæpastarfsemi hér á landi.
Ögmundur Jónasson sagðist í kvöldfréttum Rúv hafa óskað eftir því að dómsmálaráðherra komi til allsherjarnefndar Alþingis og geri grein fyrir stöðunni. Hann segir efasemdir af hans hálfu vera miklar, -allar viðvörunarbjöllur hringi í höfði hans þegar talað sé um forvirkar rannsóknir af þessu tagi.
Hann minnir á að hugmyndir af þessu tagi hafi áður verið slegnar út af borðinu. Menn hafi óttast að gengið yrði á réttindi einstaklinga. Ögmundur segist vissulega hafa áhyggjur af skipulagðri glæpastarfsemi, en efast um að þetta sé rétta leiðin. Bent hefur verið á að í nágrannaríkjum okkar hafi lögregla rannsóknarheimildir af þessu tagi.
Flokksbróðir hans, Árni Þór Sigurðsson, tekur undir þetta.
„Það er mjög vandmeðfarið að gefa heimildir sem þessar án þess að ekki liggi fyrir grunur um refsivert athæfi. Ég ætla ekki að fullyrða um það, en við verðum að fara yfir hvaða leiðir geta verið mildari og ég veit að það eru miklar efasemdir um þessa leið hjá mjög mörgum,“ sagði Árni Þór í sjónvarpsfréttum í kvöld.
Eyjan greindi frá því fyrr í dag að stjórn Ungra Vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu mótmælir harðlega hugmyndum dómsmálaráðherra. Kallað er eftir almennri stefnubreytingu í dómsmálaráðuneytinu og vilji Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra það ekki, eigi hún að víkja.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

