Biskup: Mannlegur máttur getur ekki dæmt Ólaf. Mætum öll dómi um síðir
„Það er mjög erfitt að bregðast við slíkum ásökunum sem koma fram með þessum hætti. Séra Ólafur (Skúlason) er látinn. Við verðum að muna það og hafa það í huga að enginn mannlegur máttur getur dæmt í þessu máli. Það segir einhvers staðar að hinn dauði hefur sinn dóm með sér. Öll þurfum við að mæta þeim dómi og því réttlæti um síðir,“ sagði Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, í fréttum Stöðvar 2 í kvöld, aðspurður um viðbrögð kirkjunnar við frásögn Guðrúnar Ebbu, dóttur Ólafs, um að hann hafi misnotað sig kynferðislega í æsku.
Guðrún Ebba lýsti fyrir Kirkjuráði fyrr í vikunni hvernig faðir hennar misnotaði hana kynferðislega í mörg ár. Prestur í Kirkjuráði segir að öllum ætti að vera ljóst að fótur var fyrir frásögnum þeim kvenna sem sögðu biskupinn hafa misnotað sig á sínum tíma. Frá þessu var greint í Morgunblaðinu í dag.
Af orðum biskups í dag var ekki að heyra að kirkjan myndi beita sér frekar í málinu. Karl ítrekaði að kirjan hefði gert ýmislegt til að koma í veg fyrir ofbeldi, en sagði hana ekki þess umkomna að dæma aðra fyrir gamlar syndir.
„Frelsarinn hvetur okkur til að dæma ekki. Við erum ekki þess umkomin þess að dæma. En við hryggjum með þeim sem líða vegna þessa máls og slíkra mála,“ sagði biskup.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

