
Frá Ölvisholti
Brugghús Ölvisholts hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta en rekstrinum verður þó haldið áfram á nýrri kennitölu. Ölgerðin var ein af nokkrum íslenskum ölgerðum sem spruttu hér upp á síðustu árum en í Ölvisholti voru framleiddir sælkerabjórar á borð við Skjálfta, Móra, Freyja og Lava.
Hefur Morgunblaðið eftir skiptastjóra búsins að ákveðið hafi verið að halda rekstri áfram enda nægur bjór á lager og í tönkum brugghússins. Þá sé framleiðsla á jólabjór fyrirtækisins langt komin og því hafi verið talið vænlegast að skipta um kennitölu og halda rekstri áfram.
