Föstudagur - 20.8 2010 - 07:46 - Ummæli ()

Forseti Íslands véfengir staðhæfingar Björgólfs Thor Björgólfssonar

Hringdi ekki í Björgólf Thor

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, vill ekki kannast ekki við að hafa sérstaklega haft samband við auðkýfinginn Björgólf Thor Björgólfsson í byrjun október 2008 og hvatt hann til að koma til Íslands vegna ástandsins sem þá ríkti. Kemur þetta fram á fréttaveitu Björgólfs Thor sem hann opnaði í gær en þar opinberar Björgólfur ýmislegt sem leynd hefur hvílt yfir.

Er forsetinn reyndar ekki sá fyrsti sem neitar að rétt sé farið með upplýsingar. Róbert Wessmann harðneitaði í gær að hafa verið rekinn frá Actavis á sínum tíma eins og Björgólfur heldur einnig fram.

Í skýrslum Björgólfs má sjá að þann 3. október 2008 hafi allmargir áhrifamenn í íslensku þjóðfélagi hringt í hann og beðið hann um að koma til landsins. Þar á meðal forsetinn sjálfur.

Þessu neitar Ólafur Ragnar í Morgunblaði dagsins og segir hafa látið kanna hvort rétt hafi verið. „Ég kannaði heimildir sem ég hef undir höndum og sé ekkert um samtöl við Björgólf Thor þessa daga.“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar