Stofnuð hefur verið „Íslenska sjálfsvararsveitin“, sem segist vera reiðubúin að beita sjálfsmorðsárásum til þess að „verja sjálfstæði Íslands“, einsog segir í tilkynningu þeirra og hvatningu til að fá til sín liðsmenn.
Hópurinn hefur stofnað facebook síðu undir nafninu „Við myndum fórna lífinu fyrir Ísland !!!“, en þar segir í lýsingu á hópnum:
„Samtök fyrir þá sem finnst áróður Evrópu-sinna jaðra við föðurlandssvik og myndu frekar láta lífið fyrir ættjörðina heldur en að sjá hana falla í óvina hendur.“
Á síðunni er hvatt til ýmissa ofbeldis- og spellvirkja, en þann 16. ágúst sagði:
„Brátt munum við birta lista yfir „óvini nýja Íslands“, lista yfir réttdræpa landráðamenn, mafíósa, evrópusinna og önnur skotmörk sem þarf að uppræta með öllum tiltækum ráðum…ÁFRAM ÍSLAND !“
Þá hefur hópurinn hug á að láta til skarar skríða á fundi sem samtökin Sterkara Ísland halda á laugardag undir yfirskriftinni „Áfram með smjörið – vinnufundur á Borginni“, en Sterkara Ísland eru samtök þeirra sem aðhyllast inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Er slíkur málstaður sem eitur í beinum skæruliðahópsins, sem óskar eftir sjálfboðaliða til að valda usla á fundinum og er sjálfsmorðsárás þeim ofarlega í huga:
„Jæja… hver ætlar að vera fyrstu til að fórna sér fyrir málstaðinn? Sprengjubeltið bíður…“
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna Sterkara Ísland, staðfesti við Eyjuna að hótanir hópsins hefðu verið kærðar til lögreglu og að þar væru þær teknar alvarlega.
„Okkur var nokkuð brugðið enda ekki á hverjum degi sem fólki er hótað ofbeldi fyrir skoðanir sínar hér á landi – sem betur fer. Það er alltaf sorglegt þegar rökþrotamenn hóta ofbeldi, en þetta dæmir sig nú sjálft,“ sagði hún við Eyjuna.

