Fimmtudagur - 26.8 2010 - 14:00 - Ummæli ()

Kærasta Ronaldos kynæsandi í GQ: „Ég hef engan áhuga á fótbolta“

Nýja kærastan hans Cristiano Ronaldo, hin rússneska Irina Shayk, tekur sig vel út á síðum nýjasta heftisins af karlaritinu GQ.

Þar stillir hún sér upp á ýmsa vegu, lesendum blaðsins til yndis og ánægjuauka.

Í viðtali við blaðamann GQ vildi Irina þó sem minnst segja um samband sitt og Ronaldo. Hún sagði þó að hún hefði engan áhuga á fótbolta.

Ég hef engan fótboltaáhuga, það er sko alveg á hreinu.

Þau Ronaldo hafa verið að hittast frá því snemma á þessu ári og því kom það á óvart þegar Ronaldo tilkynnti að hann ætti sjálfur von á barni sem hann ætlaði að ala upp einn síns liðs.

Irina hefur ekkert gefið uppi um hvort hún muni koma að uppeldi barnsins en sem stendur eru það móðir og systir Ronaldos sem annast litla drenginn er hefur verið skírður eftir föður sínum.

Móðir drengsins mun vera óþekkt gengilbeina í Bandaríkjunum sem gaf forsjána með drengnum fyrir háa peningaupphæð.

En kærastan hans, Irina, sem er 24 ára, kemur úr litlum bæ í Rússlandi þar sem ekkert er að sjá nema kolanámur að hennar sögn.

Hún var uppgötvuð þegar móðir hennar skráði hana í fegurðarsamkeppni og fljótlega upp úr því fór hún að vinna við fyrirsætustörf í París. Hún hefur til þessa starfað fyrir m.a. Victorias Secret og setið fyrir í Sports Illustrated Magazine.

Smelltu hér til að skoða fleiri myndir af þessari flottu stelpu:

 <  1 af 7 > 

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar