Föstudagur - 27.8 2010 - 12:34 - Ummæli ()

Hanna Birna svarar Jóni Gnarr: Vertu ekki svona persónulegur. Þetta snýst um pólitík

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, segir Jón Gnarr borgarstjóra taka pólitískum umræðum full persónulega. Umræðan eigi ekki að snúast um stjórnmálamennina sjálfa heldur borgarbúa.

Rætt er við hana á Smugunni í tilefni af færslu Jóns Gnarr á Facebook sem Eyjan sagði frá í morgun.

Eftir Hönnu Birna er haft að sjálfstæðismenn styðji ekki þær gjaldskrár- og skattahækkanir sem séu í farvatninu.

,,Við sjálfstæðismenn styðjum ekki þær gjaldskrár og skattahækkanir sem eru í farvatninu. Það er okkar hlutverk að standa vaktina fyrir kjósendur og við höfum tekið slaginn. Það hefur ekki með hroka eða töffaraskap að gera. Það er alveg ljóst að það verður ekkert samstarf í borginni án umræðna og skoðana. Við erum ekki aðilar að meirihlutanum og þurfum að fá að halda okkar sjónarmiðum fram og vera óhrædd við slíka umræðu.“ segir Hanna Birna.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar