Jennifer Aniston hefur árum saman verið föst í hlutverki góðu amerísku stelpunnar en það er um það bil að breytast.
Nú ætlar þessi siðprúða daman að fara úr að ofan í næstu mynd sinni, Wanderlust.
Jennifer, sem er orðin 41 árs og hefur leikið í ótal rómantískum gamanmyndum hefur lítið berað á sér líkamann þótt lögulegur sé en nú verður breyting þar á.
Persónan sem Jennifer leikur í myndinni gerir allt, allt aðra hluti en fyrrum persónur hennar. Hún sefur hjá bæði körlum og konum, fleirum en einu í senn, tekur eiturlyf og sitthvað fleira.
Wanderlust fjallar um konu sem flytur inn í hippakommúnu eftir að hafa fengið nóg af stressinu í New York. Í handritinu kemur fyrir atriði þar sem hún rífur sig úr að ofan til að reyna að dreifa athygli verkamanna sem myndast við að byggja stórverslun.
Sá sem leikur eignmann söguhetjunnar er Paul Rudd en þau Aniston komu síðast saman í myndinni Object of my affection sem var gefin út fyrir um tólf árum.
Tökur hefjast í nóvember.
