Viðskipti Laugardagur - 28.8 2010 - 09:40 - Ummæli ()

Egill um viðtalið við Sigurð Einarsson: Virkar eins og kómísk fígúra

Viðtal Fréttablaðsins við Sigurð Einarsson fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings er eitt helsta umræðuefni fólks í dag. Sigurður kennir öllum öðrum en sjálfum sér um bankahrunið haustið 2008. Hann hefur stór orð um vinnubrögð sérstaks saksóknara. Og hann neitar algjörlega að biðja þjóðina afsökunar.

„Það er sérstakt að lesa viðtal við Sigurð Einarsson í Fréttablaðinu. Það má segja að hann láti vaða á súðum, segir Egill Helgason á bloggi sínu.

„Eins og aðrir hrunkvöðlar þá finnur hann enga sök hjá sjálfum sér. Þeir eiga þetta sammerkt næstum allir, bæði þeir sem voru í bönkunum og stjórnsýslunni. Og svo kemur í ljós að þegar Sigurður neitaði að mæta í yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara, ja, þá var hann að mótmæla. Eða svo segir hann. Það er líka gaman þegar hrunkvöðlar benda hverjir á aðra. Sigurður segist ekki skilja af hverju fyrsta sakamálarannsóknin eftir hrun var ekki vegna Icesave.,“ bætir Egill við.

„Annars virkar Sigurður nánast eins og kómísk fígúra í þessu viðtali. Þetta er allt eitthvað svo furðulegt hjá honum,“ segir Egill.

Annar þekktur bloggari, Páll Vilhjálmsson, ræðir málið undir fyrirsögninni „Gagnsókn glæpamanna“. Beðið er viðbragða Pressupennanna Bubba Morthens og Ólafs Arnarsonar, en þeir hafa verið velviljaðir útrásarvíkingunum í skrifum sínum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar