Lara Carter er 25 ára bresk kona sem hefur aðeins eitt á heilanum – að verða barnshafandi.
Hún á hinsvegar ekki mann og því hefur Lara brugðið á það ráð að reyna að finna sér barnsföður á skemmtistað.
Hún segist hafa haft samfarir við um tuttugu ókunnuga menn á undanförnum misserum, aðeins í þeim tilgangi að verða ólétt. Af þessu tilefni kallar Lara sjálfa sig sæðisveiðikonu eða ’sperm hunter’.
Lara segist mæla hormón í blóðinu áður en hún leggur í hann og hún reynir aðeins við mennina þegar hún hvað frjósömust. Lara þykist vera drukkin þegar hún er á veiðum en hún segir að karlmenn kunni vel að meta svolítið hífaðar stelpur; þeir verði öruggari með sig þannig.
Lara segist gera þetta af peningalegum ástæðum. Hún eigi heldur ekki kærasta og hafi ekki hugsað sér að deila uppeldinu með barnsföður.
Hún segir það rándýrt að fara í gervifrjóvgun en bara viðtalið kosti 60.000 kr. Þá kostar sæðið og frjóvgunin tæplega 380.000 kr. Hinsvegar séu ótal strákar til í að stunda kynlíf með henni án þess að borga krónu.
Ég er sæt og barmmikil stelpa. Þegar ég kasta mér á þá á skemmtistöðum og geri þeim ljóst að mér gangi aðeins eit til þá er eftirleikurinn ekki flókinn, segir Lara.
Hún segir ástæðuna fyrir áhuga sínum á barneignum aðallega stafa af því að vinkonur hennar eigi flest allar börn, 17 úr hópi 20 vinkvenna. Hinsvegar hafi fæstir karlmenn á hennar aldri áhuga á því að eignast börn og því hafi hún gefið það upp á bátinn að reyna að eignast barn innan sambands.
Mig langar bara að verða einstæð móðir. Það þýðir líka að ég get einbeitt mér algerlega að barninu, segir Lara sem þegar er komin með fulla kommóðuskúffur af barnafötum.

