Þriðjudagur - 31.8 2010 - 14:22 - Ummæli ()

Fullir keppendur í X-Factor rústa villu Simons Cowell

Þau komust í gegnum síuna og fengu sérlega aðstoð Simons Cowell í stjörnufræðum, gistu frítt í rándýrri villu hans á Spáni en laun heimsins eru víst vanþakklæti eins og maðurinn sagði.

Keppendurnir fóru á fyllerí og lögðu villuna alveg í rúst.

Simon Cowell greiðir tæpar þrjár milljónir króna í leigu á dag fyrir þessa villu á Marbella á Spáni en í henni eru meðal annars um 20 svefnherbergi, þrjár sundlaugar, líkamsræktarsalur og kvikmyndasalur.

Á sunnudagskvöld voru keppendurnir að hafa það ‘huggulegt’ en ekki fór betur en svo að mannskapurinn missti alveg stjórn á sér: Þau drukku frá honum rándýrt kampavín og kláruðu bjór sem Simon hafði látið fljúga sérstaklega til sín frá Japan.

Eftir það fór hópurinn í sjóbað og í kjölfarið komu þau í hús, öll blaut og í sandi. Þar skemmdu þau húsgögn og fokdýrt perskneskt teppi sem kostar tæpa milljón. Að sögn sjónarvotta nema skemmdirnar hundruðum þúsunda.

Cowell vaknaði við lætin um miðja nótt. Hann hefur sagt að þau muni þurfa að borga brúsann með fyrsta launaseðlinum sem þau fá ef vel gengur í keppninni.

Í þessu húsi lögðu keppendur X-Factor allt í rúst.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar