
Útlit er fyrir að Kristján Arason sleppi við 1,8 milljarða skuld sína við gamla Kaupþing. Eiginkona hans, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, tók sér leyfi frá þingstörfum eftir að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis kom út, en þar voru viðskiptin gagnrýnd harðlega. Þorgerður Katrín hefur þó boðað endurkomu á Alþingi í haust.
Allt útlit er fyrir að Hreiðar Már Sigurðsson, Kristján Arason og fleiri yfirmenn í Kaupþingi sleppi undan persónulegri ábyrgð vegna hlutabréfakaupa þar sem eignarhaldsfélög þeirra utan um bréfin voru stofnuð nógu snemma til að erfitt verði að rifta flutningnum. Búast má við að öðrum yfirmönnum sem stofnuðu félög sín síðar verði stefnt í haust náist ekki samkomulag um greiðslu. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Nokkrir starfsmenn Kaupþings færðu skuldir sínar við bankann vegna hlutabréfakaupa úr persónulegri eigu í einkahlutafélög. Nær einu veðin fyrir skuldunum voru bréfin sjálf. Slitastjórnin hefur undanfarið unnið að því að rifta þessum ráðstöfunum að því er fram kom í tilkynningu í vor. Samkvæmt gjaldþrotalögunum er erfitt að rifta flutningi yfir í einkahlutafélög ef flutningurinn átti sér stað meira en sex mánuðum fyrir þrot. Allt útlit er því fyrir að eftirtaldir aðilar sleppi undan persónulegri ábyrgð.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings. Hann stofnaði sitt félag árið 2006. Félagið skuldaði bankanum tæpa sex milljarða króna við hrunið að því er fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Þórarinn Sveinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri eignastýringar bankans. Hann flutti hlutabréfaeign sína í félagið THSV sem var stofnað árið 2006. Það skuldaði bankanum rúmar 900 milljónir við hrunið og er nú gjaldþrota.
Kristján Arason, fyrrverandi framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, setti sína hlutabréfaeign í félagið 7 hægri ehf sem skuldaði bankanum rúman 1,8 milljarð króna við hrunið. Félagið var stofnað í febrúar 2008.
Aðrir yfirmenn í bankanum sem færðu eign sína í einkahlutafélög innan við sex mánuðum fyrir fall bankans eru m.a. Ingvar Vilhjálmsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta, og Guðni Níels Aðalsteinsson, fyrrverandi yfirmaður fjárstýringar, sem skulduðu 5,7 og 1,3 milljarða króna hvor.
