
Elektra eru nú með þekktari hljómsveitum meðal samkynhneigðra kvenna eftir að lagið „I don´t do boys“ varð vinsælt á Youtube um allan heim.
Elektra mun í kjölfar þessa spila á stærstu lesbiuhátíð Evrópu, L-SUN, á Mallorca í lok september.
Myndbandið, sem sýnir stelpur í flöskustút sem endar í alsherjar keleríi er nú um allan vefinn og hefur verið skoðað um 200.000 sinnum í sumar.
Elektra sendir nú fyrir helgi frá sér nýtt lag, Cobra on Heels. Lagið er eftir Örlyg Smára sem er vel þekktur fyrir framlag sitt til Evróvisjón keppninnar og Smára Tarf en textinn eftir þá Valgeir Magnússon og Gerard James Borg. Myndband við það lag er í undirbúningi.
Í laginu má heyra þrjá hljómsveitarmeðlimi syngja sóló en auk Nönu syngja Brynhildur gítarleikari og Linda hljómborðsleikari sinn hvorn kaflann. Stefnt er að því að gera myndband við lagið á næstu vikum.
Smelltu hér til að hlusta á lagið: Cobra On Heels radiomaster mp3
