„Önnur ríki verða að átta sig á því að makríllinn er hér við Ísland í gífurlegu magni og það er réttur okkar einsog annarra að veiða hann,“ segir Jón Bjarnason í viðtali við Bloomberg fréttastofuna.
Bloomberg fjallar um „makrílstríðið“ í sjónvarpsfrétt í dag. Fréttamaður Bloomberg vitnar til þess að ýmis Evrópuríki telji að Ísland ógni makrílstofninum með ofveiði og minni þannig að víkinga til forna.
Þá er vitnað til þorskastríðanna við Breta á síðustu öld. Auk þess er haft eftir skoska þingmanninum Ian Hudghton að bráðnauðsynlegt sé að setja aðildarviðræður Íslendinga við Evrópusambandið á ís þar til niðurstaða hefur fengist í makríldeilunni.
Hvorki þingmaðurinn né fréttamaður Bloomberg virðast þó átta sig á því að íslenski sjávarútvegsráðherrann og flestir íslenskir útgerðarmenn eru andvígir inngöngu Íslands í ESB og því gæti slík „hótun“ virkað frekar sem hvatning til þeirra til að veiða enn meira.

