Viðskipti Þriðjudagur - 31.8 2010 - 14:47 - Ummæli ()

Mikil óánægja með nýtt fjölmiðlafrumvarp. Forsetinn beðinn að vera viðbúinn

Ólafur Ragnar Grímsson hefur áður synjað fjölmiðlalögum staðfestingar. Nú stefnir í að skorað verði á hann að gera það aftur.

Mikil óánægja hefur myndast um frumvarp til fjölmiðlalaga, sem nú liggur fyrir Alþingi og ef svo fer sem horfir verður skorað á forseta Íslands að synja lögunum staðfestingar, verði ekki gerðar verulegar breytingar á frumvarpinu í þinginu.

Eftir því sem næst verður komist eru nær allir fjölmiðlar landsins ósáttir við frumvarpið. Rauður þráður í óánægjunni snýr að því aukna eftirliti sem boðað er með frumvarpinu. Meðal annars verður sett á laggirnar sérstök eftirlitsstofnun, Fjölmiðlastofa, en um hans segir m.a. í frumvarpinu:

„Fjölmiðlastofa er sjálfstæð stofnun með sérstaka stjórn og heyrir stjórnarfarslega undir mennta- og menningarmálaráðherra. Stofnunin annast eftirlit samkvæmt lögum þessum og annast daglega stjórnsýslu á því sviði sem lögin ná til. (…) Ákvörðunum Fjölmiðlastofu samkvæmt lögum þessum verður ekki skotið til annarra stjórnvalda.“ (7. gr.) Þá skal Fjölmiðlastofan m.a. „fylgjast með því að fjölmiðlaþjónustuveitendur fari að fyrirmælum laga þessara, taka ákvarðanir í málum samkvæmt þeim og beita viðurlögum þegar við á,“ einsog segir í 10. grein.

Bann við hvössum skoðanaskiptum um stjórnmál?

Eyjunni er kunnugt um að þegar sé hafinn undirbúningur að undirskriftarsöfnun gegn frumvarpinu, sem og hvatning til forseta Íslands um að synja lögunum staðfestingar, verði þau samþykkt óbreytt frá Alþingi. Telja andstæðingar frumvarpsins 27. greinina aðför að tjáningarfrelsinu, en þar segir:

Bann við hatursáróðri. Í fjölmiðlum er óheimilt að kynda undir hatri á grundvelli kynþáttar, kynferðis, kynhneigðar, trúarskoðana, þjóðernis, stjórnmálaskoðana eða menningarlegrar, efnahagslegrar eða félagslegrar stöðu í samfélaginu.“

Hópurinn sem berst gegn frumvarpinu telur að þarna gangi löggjafinn alltof langt í því að reyna að stöðva skoðanaskipti. Enda þótt almenn samstaða sé í þjóðfélaginu gegn misrétti á grundvelli kynþáttar, kynkneigðrar og trúarskoðana, þá vekur nokkra athygli að í þessari upptalningu skuli einnig vera talað um stjórnmálaskoðanir. Þannig gæti Fjölmiðlastofa túlkað þetta ákvæði þröngt og með fyrrnefnda lagaheimild 7. greinar, „ákvörðunum Fjölmiðlastofu samkvæmt lögum þessum verður ekki skotið til annarra stjórnvalda,“ væri hægt að setja verulegar skorður á almenna umræðu í íslenskum fjölmiðlum.

Sem fyrr segir hefur hópur fólks þegar lagt grunn að því að safna undirskriftum gegn frumvarpinu og er tíðinda að vænta af því á næstu dögum.

Auk fyrrnefndrar óánægju undrast margir að í frumvarpinu er ekki tekið á stórum þáttum í íslensku fjölmiðlaumhverfi, svo sem Ríkisútvarpinu eða eignarhaldi fjölmiðla.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar