Þriðjudagur - 31.8 2010 - 19:12 - Ummæli ()

Nýtt lag frá Lady Gaga: Living on the Radio

Lady Gaga kom aðdáendum sínum á óvart á tónleikum í Minnesota í gær þegar hún frumflutti nýtt lag.

Lagið heitir Living on the Radio og er talsvert rólegra en það sem hefur heyrst frá dívunni til þessa.

Í laginu syngur hún um sjálfa sig, eða að minnsta kosti er það mat þeirra sem hlýddu á textann því hann lýsir lífi sem er harla líkt hennar eigin.

Í textanum segir meðal annars:

„When there’s nowhere to go, and all your friends are gone/And you’ve only got your daddy to call/You can be alright honey, cos your songs are on the radio.“

Aðdáendur hennar fá líka sína athygli í laginu en þá kallar hún ‘litlu skrímslin sín’:

„Baby, you’ve got a friend, so many little monsters, yeah.“

Þetta er annað lagið sem hún frumflytur á tónleikaferð sinni um Bandaríkin.

Hitt lagið heitir You and I en bæði eru væntanleg á hljómplötu sem kemur frá henni snemma á næsta ári.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar