Fyrrum kærasti Kate Moss, vandræðagemlingurin Pete Dougherty, ætlar að búa með Amy Winehouse meðan hann dvelur í London en hún hefur boðið honum gististað.
Þau Amy og Pete eru gamlir vinir en eflaust ekki mjög góður félagsskapur fyrir hvort annað þar sem bæði eru miklir fíklar, mestu fíklarnir í bransanum að sögn bresku pressunnar.
Amy stendur nú í því að láta endurbæta húsið sitt í Camden og þegar allt er klárt langar hana að fá Pete til að búa með sér í einhvern tíma.
Að sögn breska blaðsins The Sun mun kærastinn hennar, ekki vera neitt of ánægður með planið en hugsanlega er hún að refsa honum fyrir að ganga hönd í hönd með sinni fyrrverandi um miðja nótt í almenningsgarði og mæta ekki í fjölskylduboð með Amy síðasta sunnudag.
Hér má sjá myndband af þeim Pete og Amy á eiturlyfjum en þetta tóku þau upp síðast þegar þau ’skemmtu’ sér saman. Greinilega ekki gott par. Þau eru í tómu rugli:


